Nýjast á Local Suðurnes

Ómar og Tómas með tónleika í Hljómahöll

Gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og kontrabassaleikarinn Tómas R. Einarsson hafa spilað saman í áratug, ýmist tveir einir eða í fjölmennari hljómsveitum. Innanlands og utan, meðal annars á Flatey, Djúpavík, Moskva, Andorra, Berlín, Havana, Washington DC. Þeir félagar munu halda tónleika í Hljómahöllinni mánudagskvöldið 28. september og hefjast tónleikarnir kl. 20.30

Nú hafa þeir gert langþráðan draum að veruleika: að taka upp plötu þar sem þeir semja hvor fyrir annan. Þar er músíkölsk samræða æðsta markmiðið, hvort sem um er að ræða sveiflu, latíntónlist eða ballöður. Upptakan fór fram á Kolsstöðum í Borgarfirði, á sólríkum sumardögum þar sem hvít jöklabreiða bar við augu út um upptökuglugga ásamt hrauni og blómstrandi kjarri, segir um samstarf þeirra Ómars og Tómasar á heimasíðu Hljómahallarinnar.

 

BRÆÐRALAG Um land allt!

Þeir félagar Ómar og Tómas munu kynna disk sinn á tónleikum sem haldnir verða um land allt í haust. Í Reykjanesbæ spila þeir í Bergi/Hljómahöllinni mánudagskvöldið 28. september og hefjast tónleikarnir kl. 20.30 Verð aðgöngumiða: 2.500 kr. Athygli er vakin á því að takmarkað framboð miða er á þessa tónleika.