Bjóða ókeypis heilsufarsmælingar á Suðurnesjum

SÍBS Líf og heilsa er forvarnaverkefni um heilbrigði og lífsstíl þar sem SÍBS ásamt Samtökum sykursjúkra, Hjartaheill og Samtökum lungnasjúklinga bjóða almenningi ókeypis heilsufarsmælingu í samstarfi við heilbrigðisstofnanir og sveitarfélög. Fagfólk frá heilsugæslunni verður á staðnum og veitir ráðgjöf og eftirfylgd.
Mældur er blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun og fleira, auk þess sem þátttakendum er boðið að taka þátt í könnun um lífsstíl og heilsufar sem snertir á flestum áhrifaþáttum heilbrigðs lífs.
Íbúum á Reykjanesi verður boðið upp á heilsufarsmælingar í Grindavík, Sandgerði og Reykjanesbæ dagana 9., 12. og 13. febrúar.
Sjá sibs.is/lifogheilsa – Og hér má sjá tímasteningarnar í Grindavík, Sandgerði og Reykjanesbæ.