Nýjast á Local Suðurnes

Bílvelta á Grindavíkurvegi og þrír út af á Reykjanesbraut

Mynd: Lögraglan á Suðurnesjum / Myndin tengist fréttinni ekki beint

Bílvelta varð á Grindavíkurvegi í gær þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Selhálsi norðanverðum. Hún fór út af veginum og valt í vegkantinum.  Ökumaðurinn slapp með skrámur en bifreiðin var óökufær.

Þá hafa orðið þrjú umferðaróhöpp á Reykjanesbraut á síðustu dögum þar sem ökumennirnir misstu stjórn á bílum sínum með þeim afleiðingum að þeir höfnuðu á vegriði. Engin slys urðu á fólki en talsvert tjón á bifreiðunum.