Nýjast á Local Suðurnes

Enn miklar tafir á álagstímum í FLE

Nýtt farangursflokkunarkerfi er ein af orsökunum fyrir töfum

Enn er töluvert um tafir á álagstímum í komu­sal Flug­stöðvar Leifs Ei­ríks­son­ar. Miklar tafir urðu til að mynda í kring­um miðnætti í gær­kvöldi þegar marg­ar flug­vél­ar voru að lenda á sama tíma á flug­vell­in­um. Farþegar þurftu að bíða lengi eft­ir tösk­un­um sín­um og mis­vís­andi upp­lýs­ing­ar bár­ust um á hvaða færi­bandi tösk­urn­ar áttu að vera.

Ástæðan fyr­ir töf­un­um er sú að verið er að tengja nýtt far­ang­ur­s­kerfi við tösku­bönd­in í komu­saln­um. Gunn­ar Sig­urðsson­, markaðsstjóri Isa­via, sagði í samtali við mbl.is að tvö bönd af þrem­ur væru í notk­un og geta taf­ir hlot­ist af því.

„Það er mjög stór álagspunkt­ur um miðnætti þegar marg­ar vél­ar lenda á sama tíma. Það er mikið af tösk­um að koma og ekki eins mik­il af­kasta­geta,“ seg­ir Gunn­ar.