Nýjast á Local Suðurnes

Samið um rekstur Flugeldhúss til tólf ára

Icelandair hefur samið við fyrirtækið Newrest Group um rekstur flugeldhúss Icelandair á Keflarvíkurflugvelli. Samningurinn er til tólf ára.

Newrest tekur við rekstrinum 1. febrúar næstkomandi. Flugeldhúsið er eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi en þar eru framleiddar veitingar sem flugfélagið býður upp á í flugi. 

Fjöldi fólks af Suðurnesjum starfar hjá Flugeldhúsi Icelandair og svo virðist sem það muni halda vinnunni, miðað við orð forstjóra Icelandair í fréttatilkynningu.

„Enda býr starfsfólk eldhússins okkar á Keflavíkurflugvelli yfir gríðarlega mikilli reynslu og þekkingu sem mun nýtast nýjum rekstraraðila, og þar með Icelandair, vel til langrar framtíðar,“ segir forstjórnn og bætir við að Newrest sé eitt af fremstu fyrirtækjum heims í rekstri flugeldhúsa og þeir séu þú þegar í samstarfi við fjölda alþjóðlegra flugfélaga á borð við SAS, Delta, United Airlines og Air Canada. 

Mynd: Icelandair