Geirmundur fær 18 mánaða dóm
Geirmundur Kristinsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, var í dag dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti fyrir umboðssvik.
Héraðsdómur Reykjaness sýknaði Geirmund af ákæru um umboðssvik í nóvember árið 2016, en í héraðsdómi fór ákæruvaldið fram á fjögurra ára fangelsisrefsingu. Ríkissaksóknari áfrýjaði málinu til Hæstaréttar í byrjun janúar á þessu ári.
Þá var Geirmundi gert að greiða allan áfrýjunarkostnað málsins og málsvarnarlaun verjanda síns, samtals 6,1 milljón.
Dóm Hæstaréttar má finna í heild sinni hér.