Vilja stofna sjóð til að styðja við uppbyggingu á innviðum fyrir rafbíla
![tesla-1738969_1280](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2020/10/tesla-1738969_1280.jpg?resize=620%2C264)
Framtíðarnefnd Reykjanesbæjar leggur til að sveitarfélagið styðji enn frekar við uppbyggingu á innviðum fyrir rafbílavæðingu í Reykjanesbæ.
Framtíðarnefnd leggur til að Reykjanesbær setji á fót sjóð sem húsfélög fjölbýlishúsa geti sótt í til að koma upp hleðslubúnaði fyrir rafbíla. Leitað verði eftir samstarfi við HS Veitur og lagt til að framlag frá hvorum aðila verði 6 milljónir kr. á ári.
Tillagan gengur út á að úthlutað verði úr sjóðnum árlega 12 milljónum króna sem er sambærileg upphæð og t.a.m. Reykjavíkurborg og Akranes hafa lagt í slíka sjóði í hlutfalli við íbúafjölda.