Nýjast á Local Suðurnes

Jóhann Friðrik: Fjármunum betur varið í vegakerfið en flugvöll í Hvassahrauni

Jóhann Friðrik Friðriksson lagði fram eftirfarandi viðbót við ályktun flokksins um samgöngumál á flokksþingi Framsóknarflokksins sem haldið er í dag. Viðbótin sem Jóhann lagði fram var samþykkt, en hana má sjá hér fyrir neðan:

Framsóknarflokkurinn telur hugmyndir um flugvöll í Hvassahrauni óraunhæfar og telur hagkvæmara að efla bæði Keflavíkurflugvöll og Reykjavíkurflugvöll í þeirra hlutverkum.

Miðstöð innanlandsflugs á Íslandi er í Reykjavík og millilandaflugs á Suðurnesjum. Svæðisskipulag Suðurnesja sem samþykkt hefur verið af öllum sveitarfélögum svæðisins gerir ekki ráð fyrir flugstarfsemi í Hvassahrauni. Hvassahraun liggur á vatnsverndarsvæði á svokölluðu fjarsvæði vatnsverndar fyrir Suðurnes. Við skilgreiningu fjarsvæðis er litið til þátta eins og misgengis og sprungna þar sem gæta þarf sérstakrar varúðar og því eru framkvæmdir þar takmörkum settar. Áætlað er að flugvallarframkvæmdir í Hvassahrauni geti kostað yfir 200 milljarða króna. Fjármunum er mun betur varið til vegamála þar sem stórátaks er þörf. –