Nýjast á Local Suðurnes

Í umferðinni undir áhrifum kókaíns og kannabisefna

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði akstur tveggja ökumanna í vikunni, sem báðir reyndust vera undir áhrifum fíkniefna.

Bifreið annars þeirra reyndist að auki vera á stolnum skráningarnúmerum. Hinn hafði neytt amfetamíns, kókaíns og kannabisefna, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu.