Fjórtan skjálftar við Grindavík – Enn greinilegt landris í gangi
![jardskjalftar](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2017/07/skjalftar.png?resize=620%2C264)
Lítil jarðskjálftavirkni hefur verið síðan um miðnætti við Grindavík, en fjórtán skjálftar mældust og voru þeir allir undir 2,0 að stærð. Enn mælist landris vestan við Þorbjörn. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar, en þar segir jafnframt að með auknu eftirliti berist nú fleiri gögn í hús sem gefa skýrari mynd af þróun mála við Þorbjörn.
Nýjasta GPS úrvinnslan sýnir áframhaldandi landris á svæðinu vestan við Þorbjörn. Í heildina hefur land risið um 3 cm frá 20. janúar. Erfitt er að túlka breytingar útfrá einstaka mælipunktum en með því að skoða meðaltal þéttari mælinga er greinilegt að landrisið er enn í gangi. Þar sem um er að ræða langtíma atburð þarf að fylgjast vel með mælingunum til lengri tíma til að átta sig betur á heildarferli jarðhræringanna. Búast má við áframhaldandi skjálftavirkni á svæðinu og að áfram finnist stærstu skjálftarnir í hrinunni í grennd við Grindavík. Líklegasta skýring þessarar virkni er kvikuinnskot á 3-5 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Algengast er að kvikuinnskotavirkni ljúki án eldsumbrota.