Nýjast á Local Suðurnes

Endaði á hliðinni eftir að hafa runnið út af Reykjanesbraut

Fólksbíll rann út af Reykjanesbraut rétt sunnan við afleggjarann að Vogum en éljagangur, snjókoma og fljúgandi hálka er á svæðinu.

Tilkynning um slysið barst um klukkan 19:20 í kvöld. Bíllinn rann út af veginum í hálkunni og endaði á hliðinni, segir í frétt Vísis.is. Ökumaðurinn var fluttur til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en er ekki talinn slasaður.

Bíllinn er talinn töluvert skemmdur og þurfti kranabíl til að flytja hann af vettvangi.