Eldur kom upp um borð í farþegaþotu – Hæsta viðbúnaðarstig á Keflavíkurflugvelli
![Crew_4_wizzair](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/06/Crew_4_wizzair.jpg?resize=620%2C264)
Farþegaþota frá flugfélaginu Wizz Air lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan rétt fyrir átta í kvöld, en tilkynnt var um um eld um borð í vélinni. Um borð eru 147 manns.
Mikill viðbúnaður er vegna málsins og er hæsta viðbúnaðarstig í gildi, en þá eru allir viðbragðsaðilar kallaðir út , þar á meðal björgunarsveitarmenn. Þá hafa slökkviliðsmenn meðal annars verið sendir á staðinn af höfuðborgarsvæðinu.
Farþegaþotan var á leið til Póllands frá Íslandi þegar ákveðið var að snúa við til Keflavíkurflugvallar.