Bjóða á fjórða hundrað ungum iðkendum til körfubolta- og pizzaveislu
![korfub kef nja](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2018/01/korfub-kef-nja.jpg?resize=620%2C264)
Körfuknattleiksdeildir Keflavíkur og Njarðvíkur í samstarfi við Humarsöluna munu bjóða iðkendum deildanna á aldrinum 6 – 9 ára, auk leikskólahóps, til körfubolta- og pizzaveislu á sunnudag.
Yngri flokka starf félaganna hefur verið í miklum blóma undanfarin misseri og hefur iðkendum fjölgað ört, bæði í Keflavík og Njarðvík og unnu félögin nokkra Íslandsmeistaratitla í íþróttinni.
Það er því ljóst að framtíðin er björt í körfuboltanum í Reykjanesbæ, en alls munu vel á fjórða hundrað börn mæta til leiks á vegum beggja félaga á sunnudag og mun fjörið standa yfir nær allan daginn í TM-Höllinni við Sunnubraut.