Nýjast á Local Suðurnes

Valdimar sótthreinsaður og færður í slipp

Mynd: Valdimar GK í Njarðvíkurhöfn

Línubáturinn Valdimar GK verður sótthreinsaður og afla landað úr skipinu í kjölfar þess að allir skipverjar reyndust smitaðir af kórónuveirunni. Skipinu verður svo komið í slipp í Njarðvík en það stóð til að áður en smit skipverjanna komu upp.

Viljinn.is greinir frá því að landað verði upp úr skipinu í dag og verður það gert í samræmi við kröfur Landlæknisembættisins þar að lútandi, en veiran lifir ekki í matvælum og aflinn því nýtanlegur.