Nýjast á Local Suðurnes

Bjóða á fjórða hundrað ungum iðkendum til körfubolta- og pizzaveislu

Körfuknattleiksdeildir Keflavíkur og Njarðvíkur í samstarfi við Humarsöluna munu bjóða iðkendum deildanna á aldrinum 6 – 9 ára, auk leikskólahóps, til körfubolta- og pizzaveislu á sunnudag.

Yngri flokka starf félaganna hefur verið í miklum blóma undanfarin misseri og hefur iðkendum fjölgað ört, bæði í Keflavík og Njarðvík og unnu félögin nokkra Íslandsmeistaratitla í íþróttinni.

Það er því ljóst að framtíðin er björt í körfuboltanum í Reykjanesbæ, en alls munu vel á fjórða hundrað börn mæta til leiks á vegum beggja félaga á sunnudag og mun fjörið standa yfir nær allan daginn í TM-Höllinni við Sunnubraut.