Arnar Helgi setti Íslandsmet í Doha
![arnar helgi](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/09/arnar-helgi.jpg?resize=620%2C264)
Arnar Helgi Lárusson keppti í gær í 200 metra hjólastólaspretti á heimsmeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum sem nú stendur yfir í Doha í Katar.
Arnar Helgi kom í mark á tímanum 32,77 sekúndum og setti þar með Íslandsmet í greininni í fötlunarflokki T53 en gamla metið var 33,35 sekúndur. Tími hans dugði honum þó ekki til að ná inn í úrslitin en hann var í sjötta sæti í sínum undanriðli og í tólfta sæti af þrettán keppendum.
Arnar Helgi keppir í 400 metra kappakstri á morgun.