Nýjast á Local Suðurnes

Reynsluboltar skrifa undir nýja samninga hjá Njarðvík

Þeir Andri Fannar Freysson, Stefán Birgir Jóhannesson og Styrmir Gauti Fjeldsted hafa allir skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Knattspyrnudeild Njarðvíkur.

Samtals hafa þeir leikið samtals 249 leiki með meistaraflokki Njarðvík og gert 39 mörk. Andri Fannar og Styrmir Gauti eru uppaldir leikmenn hjá Njarðvík en Stefán Birgir kom frá Fram árið 2014, segir í tilkynningu frá félaginu.

Þá skrifaði Óðinn Jóhannsson undir tveggja ára samning við deildina en hann var að gang upp úr 2. flokki. Óðinn á að baki 11 mótsleiki með meisaraflokki og gert 2 mörk.