Aðgerðin tókst vel – Bonneau vill hvergi vera nema í Njarðvík
Bandaríski leikmaður Njarðvíkinga í körfuknattleik, Stefan Bonneau gekkst undir aðgerð í dag, eftir að hafa slitið hásin á hægri fæti. Bonneau hefur sem kunnugt er verið frá keppni í um sex mánuði eftir að hafa slitið hásin á vinstri fæti fyrir tímabilið.
Á Facebook síðu Njarðvíkinga kemur fram að aðgerðin hafi tekist vel og að kappinn muni koma sterkur til leiks næsta haust.
“Adgerdin à Stefan Bonneau gekk afar vel í dag. Hann mun hvílast yfir nòtt à spítalanum og koma heim à morgun.
Nù tekur vid bataferli en hann mun koma tvíelfdur til baka i haust. Hann vill hverfi annars stadar vera en hjà okkur í Njardvík, er thakklàtur fyrir eiga okkur öll ad.
KKD Njardvikur koma à framfæri thakklæti til allra sem hafa haft samband à umlidnum dögum med thad eitt i huga ad koma Stefan til adstodar med einum eda ödrum hætti.
Thid erud frábær, àn ykkar væri thetta erfitt en med ykkar hjàlp thà reddast thetta allt saman” Segir á Facebook-síðu Kkd Njarðvíkur.