Nýjast á Local Suðurnes

Gossvæðið lokað á morgun

Í ljósi veðurspár fyrir morgundaginn hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að gossvæðið við Fagradalsfjall verði lokað á morgun, fimmtudag.

Í tilkynningu segir að veðurspá hljóði upp á suðaustan hvassviðri og úrhellisrigningu. Gert er ráð fyrir vindi allt að 20 m/s og úrhellisrigningu upp á 41mm. Ljóst er að við veðuraðstæður líkt og búast má við á morgun verða allar leiðir, hvort heldur er gönguleiðir eða neyðarvegur viðbragðsaðila, eitt forarsvað og því getur reynst erfitt fyrir viðbragðsaðila að bregðast við útköllum og sinna eftirliti á svæðinu.