WOW-air býður upp á beint flug til Ísrael
![Skuli_Mogensen_tfmom](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/04/Skuli_Mogensen_tfmom.jpg?resize=620%2C264)
WOW air mun hefja áætlunarflug til Tel Aviv í Ísrael þann 12. september. Frá þessu er greint á ferðavefnum Túristi.is. WOW-air sótti um afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli fyrir beint flug þaðan til ísraelsku borgarinnar í tengslum við gerð loftferðasamnings milli landanna tveggja.
Sala flugsæta hefst á morgun samkvæmt tilkynningu frá WOW air og þar segir jafnframt að flogið verði fjórum sinnum í viku, á þriðjudögum, miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Flugferðin héðan til Ben Gurion flugvallar í Tel Aviv mun taka um 7 klukkutíma.