Nýjast á Local Suðurnes

Umhverfissvið Reykjanesbæjar hvetur íbúa til að huga að barneignum í kvöld

Rúmið á myndinni tengist fréttinni ekki beint

Umhverfissvið Reykjanesbæjar leggur til við bæjarbúa að þeir noti kvöldið í kvöld til að huga að barneignum, ástæðan mun þó ekki vera sú að hvetja þurfi til fólksfjölgunar í sveitarfélaginu heldur mun verða ansi myrkvað í bænum þar sem öll gatnalýsing í Reykjanesbæ mun detta út á mill kl. 22:30 og 00:00 vegna vinnu við aðveitustöðina á Fitjum.