Njarðvíkingur varð Noregsmeistari í borðtennis
![borgar haug bordtennis](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/02/borgar-haug-bordtennis.jpg?resize=620%2C264)
Hinn hálf-íslenski Borgar Haug, varð norskur meistari í drengjaflokki 16-18 ára á norska unglingameistaramótinu í borðtennis um síðustu helgi. Borgar er sonur Áslaugar Skúladóttur úr Njarðvík og Norðmannsins Tom-Erik Haug.
Borgar, sem er í 6. sæti á styrkleikalista drengja í Noregi, sigraði stigahæsta leikmanninn, Fredrik Meringdal í úrslitaleik. Borgar landaði einnig sigri í tvíliðaleik ásamt félaga sínum Alex.
Borgar hefur tekið þátt í borðtenniskeppnum hér á landi, en hann lék sem gestur á Arctic mótinu í Reykjavík sumarið 2013 og sigraði þá í flokki 13 ára og yngri.