Nýjast á Local Suðurnes

Gefa viðskiptavinum mánaðartryggingar á einkabílum

Tryggingafélagið Sjóvá hefur tilkynnt að viðskiptavinir félagsins þurfi ekki að greiða fyrir tryggingar á einkabílum í maí. Í tilkynningunni segir að þar sem um­ferð hafi dreg­ist mikið saman eftir að sam­komu­bann tók gildi megi gera ráð fyrir að slysum og tjónum fækki sam­hliða því.

“Þess vegna viljum við bregðast við þessum tíma­bundnu aðstæðum þannig að ein­stak­lingar greiði ekki fyrir trygg­ingar einka­bíla sinna hjá okkur í maí, þótt þær séu auðvitað í fullu gildi. Þetta á við um alla ein­stak­linga sem eru með bif­reiðatrygg­ingar fyrir öku­tæki í al­mennri notkun í gildi hjá okkur þann 1. maí.” Segir í tilkynningunni.