Gefa viðskiptavinum mánaðartryggingar á einkabílum
Tryggingafélagið Sjóvá hefur tilkynnt að viðskiptavinir félagsins þurfi ekki að greiða fyrir tryggingar á einkabílum í maí. Í tilkynningunni segir að þar sem umferð hafi dregist mikið saman eftir að samkomubann tók gildi megi gera ráð fyrir að slysum og tjónum fækki samhliða því.
“Þess vegna viljum við bregðast við þessum tímabundnu aðstæðum þannig að einstaklingar greiði ekki fyrir tryggingar einkabíla sinna hjá okkur í maí, þótt þær séu auðvitað í fullu gildi. Þetta á við um alla einstaklinga sem eru með bifreiðatryggingar fyrir ökutæki í almennri notkun í gildi hjá okkur þann 1. maí.” Segir í tilkynningunni.