Nýjast á Local Suðurnes

Stóri plokkdagurinn á sunnudag

Stóri plokkdagurinn verður haldinn 28. apríl næstkomandi og er fólk hvatt til að kíkja út fyrir lóðamörkin sín og plokka í sínu nærumhverfi af því tilefni.

Grendarstöðvar

Kör verða við grendarstöðvar í öllum hverfum Reykjanesbæjar og þar hægt að losa sig við plokk/rusli frá sumardeginum fyrsta og fram yfir helgi.

Í gegnum ábendingargátt sveitarfélagsins er einnig hægt að koma á framfæri upplýsingum um hvar hefur verið safnað saman rusli svo hægt sé að koma því til förgunar sem og ábendingum um annað sem betur má fara, segir í tilkynningu.

Hér eru nokkur góð plokkráð:

  • Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
  • Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
  • Klæða sig eftir aðstæðum.
  • Koma afrakstrinum í viðeigandi förgunarferli þar sem það fýkur ekki í burtu.
  • Senda ábendingu í ábendingagáttina og láta sækja ef magnið er mikið.
  • Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.
  • Munum að ALLT plokk skiptir máli, sama hversu lítið það er. Það gerir allt gagn.