Samið um fullnaðarfrágang leikskóla
![Screenshot_20240429_122612_Chrome](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2024/04/Screenshot_20240429_122612_Chrome.jpg?resize=620%2C264)
Reykjanesbær og Tindhagur hafa undirritað samning um fullnaðarfrágang leikskólans Asparlautar í Hlíðarhverfi. Alls bárust 4 tilboð í verkið. Eitt var dæmt ógilt en af hinum þremur reyndist verktakafyrirtækið Tindhagar hafa hagstæðasta tilboðið og áætlað er að verklokin verði þann 15. desember næstkomandi.
Leikskólinn, sem verður 6 deilda, mun þjóna 126 börnum frá 18 mánaða aldri og þar munu starfa 35 starfsmenn.
Vegna rakavandamála í leikskólanum Garðaseli hefur verið ákveðið að starfsemin hans með um 90 börn flytji til Asparlautar um áramótin og nýr leikskóli verði byggður á lóðinni á Garðaseli. Því munu 30 ný leikskólapláss bætast við með tilkomu Asparlautar.