sudurnes.net
Stóri plokkdagurinn á sunnudag - Local Sudurnes
Stóri plokkdagurinn verður haldinn 28. apríl næstkomandi og er fólk hvatt til að kíkja út fyrir lóðamörkin sín og plokka í sínu nærumhverfi af því tilefni. Grendarstöðvar Kör verða við grendarstöðvar í öllum hverfum Reykjanesbæjar og þar hægt að losa sig við plokk/rusli frá sumardeginum fyrsta og fram yfir helgi. Í gegnum ábendingargátt sveitarfélagsins er einnig hægt að koma á framfæri upplýsingum um hvar hefur verið safnað saman rusli svo hægt sé að koma því til förgunar sem og ábendingum um annað sem betur má fara, segir í tilkynningu. Hér eru nokkur góð plokkráð: Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.Klæða sig eftir aðstæðum.Koma afrakstrinum í viðeigandi förgunarferli þar sem það fýkur ekki í burtu.Senda ábendingu í ábendingagáttina og láta sækja ef magnið er mikið.Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá.Munum að ALLT plokk skiptir máli, sama hversu lítið það er. Það gerir allt gagn. Meira frá SuðurnesjumHeitt í kolunum við eldstöðvarnar – Skelltu sér í sleik í beinniPalli á skralli endaði einn í sóttkví – Sjáðu myndböndin!Lax án fyrirhafnar [...]