Nýjast á Local Suðurnes

Vinnu við fyrsta áfanga ungmennagarðsins í Grindavík að ljúka

Áætlaður kostnaður við fullbúinn garð er um 14 milljónir króna

Undanfarið hafa staðið yfir umtalsverðar framkvæmdir á skólalóðinni á mótum Ása- og Víkurbrautar en þar rís nú svokallaður Ungmennagarður, sem er afsprengi hugmynda- og undirbúningsvinnu Ungmennaráðs Grindavíkurbæjar. Nú fyrir helgi var aparólan tekin í gagnið, en grindvísk börn (og eflaust margir fullorðnir líka) hafa beðið spennt eftir að komast í róluna, þetta kemur fram á Grindavík.is

aparola grindavik

Aparólan er kominn upp og nýtur mikilla vinsælda – Mynd: Grindavík.is

Þá er einnig búið að setja upp útigrill og skýli en meðal tækja sem verða í Ungmennagarðinum eru, sófaróla, minigolf, strandblak og trampólín körfuboltavöllur.

Framkvæmdir í ár eru langt komnar en fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar gerir ráð fyrir að 6 milljónir verði lagðar í verkið í ár, 5 á því næsta og 3 árið 2017.