Nýjast á Local Suðurnes

Vinna allan sólarhringinn við byggingu varnargarða

Vinna við gerð varnargarða við orkuverið í Svartsengi er hafin á fullum krafti, en frumvarp sem heimilar gerð garðana var samþykkt á alþingi um miðnætti. Verktakar vinna allan sólarhringinn við þetta stóra verkefni.

Þessa stundina er unnið að því að flytja stórvirkar vinnuvélar á svæðið auk þess sem efni hefur verið flutt úr malarnámum á Reykjanesskaga að orkuverinu í Svartsengi.