Samkaup hættir sölu á eggjum frá Brúneggjum
Samkaup hefur hætt sölu á eggjum frá Brúneggjum og hafa vörur fyrirtækisins þegar verið teknar úr sölu hjá verslunum Samkaupa. Samkaup rekur fjölda verslana á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni undir merkjunum Nettó, Kjörbúðin, Sunnubúð, Krambúð og Hólmgarður.
Stefán Ragnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri innkaupasviðs Samkaupa sagði í samtali við mbl.is að eggin hafi þegar verið tekin úr sölu. Á vef mbl.is kemur fram að um varanlega ráðstöfun sé að ræða.
„Það var tekin ákvörðun um að taka eggin úr sölu eldsnemma í morgun [innsk blm.:29. nóv.]. Þá var byrgjum tilkynnt að viðskiptum yrði hætt,“ Sagði Stefán.
Lágvöruverðsverslanirnar Krónan og Bónus hafa einnig tilkynnt að verslanir þeirra muni hætta sölu á eggjum frá fyrrnefndum framleiðanda.