Nýjast á Local Suðurnes

Metnaðarfull fjáröflun Njarðvíkinga – Milljónabingó og kræsingar á kostakjörum

Það er óhætt að segja að dagskráin næstu daga sé metnaðarfull þegar kemur að fjáröflun hjá Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur.

Fjörið fer í gang á þriðjudagskvöld með bráðmyndarlegu sumarbingói fyrir fullorðna þar sem andvirði vinninga er komið yfir heila milljón krónur. Húsið verður opnað gestum klukkan 18.30 og bingó hefst stundvíslega klukkan 19.30. Á meðal vinninga eru hótelgistingar, gjafabréf í Bláa Lónið, rautt, hvítt, bjór, snyrtivörur, gómsætt lambakjöt og margt fleira.

Þriðjudaginn 17. júní verður skemmtilegt fjölskyldubingó í Njarðtaksgryfjunni klukkan 12.00 og þar eru vinningarnir ekki síðri en í drekkhlöðnum vinningskörfum má finna eitthvað fyrir alla í fjölskyldunni.

Lokahnykkurinn á þjóðhátíðardagskrá Körfuknattleiksdeildarinnar er svo árlegt kaffisamsæti á sal Njarðvíkurskóla sem hefst klukkan 14.00. Venju samkvæmt er veisluborðið drekkhlaðið girnilegum kræsingum og jafnan verða þar fagnaðarfundir yfir rjúkandi kaffibolla.

Njarðvíkingar eru nú í óðaönn að undirbúa næstu leiktíð og eru miklar vonir bundnar við að sem flestir sjái sér fært um að kíkja á viðburðina þrjá dagana 16. og 17. júní og taka þátt í glæsilegri dagskrá.