sudurnes.net
Metnaðarfull fjáröflun Njarðvíkinga - Milljónabingó og kræsingar á kostakjörum - Local Sudurnes
Það er óhætt að segja að dagskráin næstu daga sé metnaðarfull þegar kemur að fjáröflun hjá Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. Fjörið fer í gang á þriðjudagskvöld með bráðmyndarlegu sumarbingói fyrir fullorðna þar sem andvirði vinninga er komið yfir heila milljón krónur. Húsið verður opnað gestum klukkan 18.30 og bingó hefst stundvíslega klukkan 19.30. Á meðal vinninga eru hótelgistingar, gjafabréf í Bláa Lónið, rautt, hvítt, bjór, snyrtivörur, gómsætt lambakjöt og margt fleira. Þriðjudaginn 17. júní verður skemmtilegt fjölskyldubingó í Njarðtaksgryfjunni klukkan 12.00 og þar eru vinningarnir ekki síðri en í drekkhlöðnum vinningskörfum má finna eitthvað fyrir alla í fjölskyldunni. Lokahnykkurinn á þjóðhátíðardagskrá Körfuknattleiksdeildarinnar er svo árlegt kaffisamsæti á sal Njarðvíkurskóla sem hefst klukkan 14.00. Venju samkvæmt er veisluborðið drekkhlaðið girnilegum kræsingum og jafnan verða þar fagnaðarfundir yfir rjúkandi kaffibolla. Njarðvíkingar eru nú í óðaönn að undirbúa næstu leiktíð og eru miklar vonir bundnar við að sem flestir sjái sér fært um að kíkja á viðburðina þrjá dagana 16. og 17. júní og taka þátt í glæsilegri dagskrá. Meira frá SuðurnesjumOfurvinningar á Bingóballi í ljónagryfjunniCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðVogabúar taka á móti Friðarhlaupurum á morgunStelpur rokka! með rokksumarbúðir í ReykjanesbæFlottir viðburðir á Fjölskyldu- og menningardögum í GarðiKK á Trúnó í Hljómahöll [...]