Nýjast á Local Suðurnes

Tvöföldun Reykjanesbrautar boðin út á næsta ári

Tvöföldun áá 5,6 kílómetra kafla Reykjanesbrautar, á milli Krýsuvíkurafleggjara og Hvassahrauns verður boðin út eftir áramót. Upphaflega átti að bjóða verkið út á síðasta ári en ýmsar ástæður eru fyrir töfum sem orðið hafa á útboðinu.

þetta kom fram í máli Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra, í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun. Þar sagði ráðherrann meðal annars að ekki væri verið að tefja tvöföldunina. Það hafa allskyns breytingar komið upp sem þurfti að bregðast við, meðal annars skipulagsmál og mál tengd landeigendum, sagði ráðherrann í þættinum.

“Við þurfum að halda að okkur fjármunum og verðin hækkuðu um fjörutíu prósent. Þannig að við gátum ekki boðið þetta út í haust, eins og til stóð. En Reykjanesbrautin verður boðin út eftir áramót, þessi kafli; Krýsuvík – Hvassahraun,“ sagði Sigurður Ingi.