Nýjast á Local Suðurnes

Eftirlýstur í vímu á fleygiferð á brautinni

Ökumaður sem lögregla á Suðurnesjum mældi á 138 kílómetra hraða á Reykjanesbraut í vikunni, þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund, reyndist hafa fleira óhreint í pokahorninu. Hann viðurkenndi neyslu fíkniefna sem sýnatökur síðan staðfestu. Þá var hann auk þess eftirlýstur vegna boðunar í dóm.

Farþegi í annarri bifreið sem lögregla stöðvaði var með meint fíkniefni í fórum sínum, bæði kannabis og hvítt duft.

Allmargir ökumenn voru svo kærðir fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 143 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund