Nýjast á Local Suðurnes

Nafnasamkeppni – Viltu vinna ársmiða á körfuboltaleiki og í líkamsrækt?

Þó nokkuð af tillögum hafa  borist í nafnasamkeppnina okkar en skilafrestur til næsta mánudags. Sem kunnugt er hefur félagsstarf UMFG og Kvenfélags Grindavíkur verið flutt í nýja og glæsilega félagsaðstöðu í nýrri íþróttamiðstöð Grindavíkurbæjar við Austurveg. Ákveðið hefur verið að efna til nafnasamkeppni fyrir þessa nýju félagsaðstöðu. Þar er bæði skrifstofuaðstaða og svo samkomusalur, þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins.

Nafnið þarf að hafa skírskotun til þeirrar starfsemi sem fer fram í húsinu, sem er íþróttastarf, tómstundastarf, forvarnarstarf og samkomur en jafnframt verður hægt að leigja salinn undir veislur, fundi og aðra viðburði.

Nafnið sem verður fyrir valinu verður tilkynnt við formlega opnun á nýja íþróttamannvirkinu í næsta mánuði.

Tillögur um nafn á sameiginlegri starfsstöð skal senda á netfangið thorsteinng@grindavik.is, munið að senda með nafn, heimilisfang og símanúmer þess sem kemur með tillöguna.

Vinningur:
Í verðlaun eru árskort í nýju líkamsræktarstöðinni sem Gymheilsa ehf. rekur í íþróttamiðstöðinni og árskort fyrir tvo á heimaleiki UMFG í úrvalsdeild karla og kvenna í körfubolta í vetur.