Nýjast á Local Suðurnes

Stytta vinnuviku og opnunartíma

Þjónustuver Reykjanesbæjar mun loka klukkan 15:00 á föstudögum frá og með 7. janúar. Nýr opnunartími þjónustuvers Reykjanesbæjar verður því eftirfarandi samkvæmt tilkynningu á vef sveitarfélagsins:

  • Mán – fim frá klukkan 9:00 til 16:00
  • Föstudaga frá klukkan 9:00 til 15:00

Reykjanesbær fagnar styttingu vinnuvikunnar sem stuðlar að aukinni velferð starfsfólks, bætir vinnustaðamenninguna og styður við samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs, segir jafnframt í tilkynningunni.