Nýjast á Local Suðurnes

Keflavík í úrslit Maltbikarsins

Kefla­víkurstúlkur trygg­ðu sér sæti í úr­slit­um Malt­bik­arkeppni kvenna í körfu­bolta með 82-67 sig­ri á Hauk­um í kvöld. Kefla­vík mæt­ir því annað hvort toppliði Dom­in­os-deild­ar­inn­ar, Skalla­grím eða bikar­meist­ur­um Snæ­fells í úr­slit­unum.

Haukar hófu leikinn af krafti og náðu fljótt sex stiga forskoti, Keflvíkingar náðu þó að minna muninn niður í tvö stig í lok fyrsta leikhluta, 18-20. Það var svo allt annað að sjá til Keflavíkurliðsins í öðrum leikluta, þrátt fyrir að liðin skiptust á að hafa forystu í upphafi, en undir lok leikhlutans voru Keflavíkurstúlkur komnar í 10 stiga forystu, 45-35.

Liðin skipt­ust á góðum köfl­um í upp­hafi seinni hálfleiks og náðu Hauk­ar að minnka mun­inn í sex stig í þriðja leik­hluta. Staðan fyr­ir síðasta leik­hlut­ann var hins veg­ar 59-52, Kefla­vík í vil.

Keflvíkingar náðu svo tíu stiga forystu á nýjan leik um miðjan fjórða leikhluta og silgdu nokkuð öruggum sigri, 82-67, í höfn.

Ari­ana Moor­er skoraði 20 fyr­ir Kefla­vík og Emel­ía Ósk Gunn­ars­dótt­ir skoraði 18.