Nýjast á Local Suðurnes

Forsetakosningar á laugardag – Allar upplýsingar hér!

Laugardaginn 27. júní næstkomandi fara kosningar til embættis forseta Íslands fram, en líkt og undanfarin ár verður einn kjörstaður í Reykjanesbæ, í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

 Reykjanesbæ verður skipt í 9 kjördeildir og kjósendur geta séð í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa með því að smella hér og slá inn kennitölu sína. Götum bæjarins er skipt á kjördeildir og fólk með sama heimilisfang kýs því í sömu kjördeild.

Kjósendum ber að framvísa persónuskilríki á kjörstað. Nánari upplýsingar um forsetakosningarnar er að finna á vef stjórnarráðsins.


LISTI YFIR KJÖRDEILDIR MIÐAÐ VIÐ SKRÁÐ LÖGHEIMILI