Nýjast á Local Suðurnes

Már íþróttamaður ársins

Mynd: Facebook / Íþróttasamband fatlaðra

Sundmaðurinn Már Gunnarsson, ÍRB, var valinn íþróttamaður ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra í dag.

Már á einkar glæsilegt íþróttaár að baki sem náði hámarki á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi sem fram fór í London. Þar varð Már einn Norðurlandabúa til þess að komast á verðlaunapall þegar hann setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 100m baksundi og vann til bronsverðlauna í greininni.

Þjálfarar Más eru þeir Steindór Gunnarsson og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson.

Á árinu 2019 setti Már alls 28 Íslandsmet og synti þrívegis undir gildandi heimsmeti á ÍM25 í Ásvallalaug. Már stefnir ótrauður að þátttöku á Paralympics í Tokyo 2020 en takist það ætlunarverk hans verður það í fyrsta sinn sem hann keppir á leikunum.