Nýjast á Local Suðurnes

Aðgerðum lögreglu lokið

Aðgerðum lögreglu í Reykjanesbæ er lokið og götur hafa verið opnaðar á ný. Enginn var handtekinn vegna málsins.

Tilkynnt hafði verið um grunsamlegar mannaferðir þar sem sést hafi verið til aðila sem kynni að vera vopnaður skotvopni.

Því hafi ákveðið verklag virkjast sem krafðist þess að lögreglan þurfti að loka af litlum hluta Reykjanesbæjar til að ganga úr skugga um hvort atvikið reyndist rétt, segir í frétt á vef RÚV.