Nýjast á Local Suðurnes

Stór skjálfti við Fagradalsfjall

Fjöldi jarðskjálft­a, stærri en 3, hafa mælst á Reykja­nesi í nótt og í morg­un, sá stærsti 4,3 samkvæmt bráðabirgðamælingum Veðurstofu.

Sá stærsti átti upp­tök sín við Fagra­dals­fjall, að sögn nátt­úru­vár­sér­fræðings Veður­stofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Fundist hefur fyrir skjálftunum víða á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu. Veðurstofan bendir á að aðgát skuli höfð við brattar hlíðar þar sem grjóthrun getur orðið í kjölfar öflugra skjálfta. Íbúar í grend við svæðið eru hvattir til að huga að lausa- og innanstokksmunum.