Nýjast á Local Suðurnes

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir frönskum ferðamanni

Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir aðstoð almennings við að hafa upp á frönskum ferðamanni, Louise Soreda, sem fædd er árið 1995.

Ekkert hefur til hennar spurst frá því hún kom til landsins þann 5. júlí síðastliðinn. Síðast er sást til hennar var hún klædd bláum gallabuxum, brúnum fjallgönguskóm og hvítri peysu. Þá hafði hún meðferðis stóran rauðan bakpoka ásamt upprúllaðri ljósgrárri dýnu, eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Þeir sem hafa upplýsingar um hvar Louise er niðurkomin, eða hafa séð hana, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Lögregluna á Suðurnesjum í síma 444 2200. Frá þessu er greint á Vísi.is.