Nýjast á Local Suðurnes

Tuttugu ökumenn stöðvaðir fyrir að tala í síma við akstur

Átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum síðustu daga.  Sá sem hraðast ók mældist á 133 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund.

Nær tuttugu ökumenn töluðu í síma án handfrjáls búnaðar og sumir þeirra voru ekki með gild ökuréttindi. Loks lögðu rúmlega  tíu bifreiðum sínum ólöglega  og fimm voru ekki með öryggisbelti spennt.