Nýjast á Local Suðurnes

Framtíðarþing um farsæl efri ár í Reykjanesbæ – Óskað eftir þátttakendum

Framtíðarþing um farsæl efri ár í Reykjanesbæ verður haldið á Nesvöllum fimmtudaginn 6. apríl kl. 15:00 – 18:00. Markmið þingsins er að skapa umræðu meðal áhugasamra um öldrunarmál, draga fram væntingar, viðhorf og hugmyndir um hvernig stuðla megi að farsælum efri árum íbúa í Reykjanesbæ. Unnið verður út frá þjóðfundarfyrirkomulagi.

Vilt þú hafa áhrif?

Óskað er eftir þátttakendum úr eftirfarandi hópum:
• 75 ára og eldri
• 55-75 ára
• 55 ára og yngri
• Starfsfólk sem tengist
öldrunarmálum

Boðið er upp á veitingar.

Niðurstöður þingsins verða afhentar Reykjanesbæ sem innlegg í stefnumótunarvinnu í málaflokknum.

Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið nesvellir@reykjanesbaer.is eða í síma 420-3400 eigi síðar en 23. mars nk. Taka þarf fram nafn, kennitölu, netfang og símanúmer.