Nýjast á Local Suðurnes

Leikjum Grindavíkur frestað

Leikjum Grindavíkur í körfuknattleik sem fram áttu að fara í kvöld hefur verið frestað vegna banaslyss sem varð á Grindavíkurvegi í morgun.

Leikur Hauka og Grindavík í Domino´s deild karla sem átti að fara fram í kvöld fer fram annað kvöld kl. 19:15.

Bikarleik Ármanns/Stjörnunnar og Grindavíkur í 10. flokki stúlkna sem átti að fara fram í kvöld hefur einnig verið frestað og verður nýr tími kynntur síðar.