Nýjast á Local Suðurnes

Brim verður aðal styrktaraðili Bláa hersins

Brim hf. hefur gerst aðal styrktaraðili umhverfissamtakanna Bláa hersins sem hafa starfað í 25 ár og leggja áherslu á hreinsunarstörf við strandlengjuna.

Brim mun styðja rekstur samtakanna með fjárframlögum og með faglegri aðkomu að kynningu og markaðsstarfi í þeim tilgangi að auka sýnileika umhverfissamtakanna. Þá mun Brim taka beinan þátt í verkefnum Bláa hersins með eigin hreinsunardegi a.m.k. einu sinni að ári þar sem fjörur verða gengnar og hreinsaðar.

Brim hlaut Umhverfisverðlaun atvinnulífsins árið 2019.

Kristján Davíðsson, stjórnarformaður Brims hf.:

„Blái herinn undir forystu Tómasar J. Knútssonar hefur unnið frábært starf í aldarfjórðung við að hreinsa fjörur af plasti og ekki síður með því að vekja athygli á mengun í hafinu. Brim leggur mikla áherslu á sjálfbærni og umhverfismál í sínu starfi og vill sýna í verki hvernig skilningur og virðing fyrir samfélagi og umhverfi fer saman við ábyrgan og arðsaman rekstur félagsins. Það fer því vel á að Brim gangi til liðs við Bláa herinn í baráttunni við plastmengun í hafinu.“ Segir Kristján Davíðsson, stjórnarformaður fyrirtækisins, í tilkynningu.