Golf, tjörn og hláturskast, það gerist ekki betra – Myndband!

Golf er skemmtileg íþrótt og góð líkamsrækt, en það getur ýmislegt komið uppá þegar menn taka sveifluna á fullu swingi, sérstaklega við tjörn. Það spillir svo ekki fyrir þegar hláturskast félaganna er ótrúlega smitandi.
Tom nokkur Solomonson deildi þessu myndbandi, sem nú fer á fleygiferð um veraldarvefinn, af félaga sínum Mike Ferik taka flotta sveiflu, sem endaði illa, á Alta Vista golfvellinum í Placentia í Kaliforníu.