Nýjast á Local Suðurnes

Eftirlitsnefnd telur aðgerðaráætlun Reykjanebæjar vera raunhæfa

Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga telur að aðgerðaráætlun Reykjanesbæjar sem nú er í umræðuferli hjá bæjarstjórn sé raunhæf og óskaði Reykjanesbæ til hamingju með að vera komin þetta langt, en aðlögunaráætlunin var kynnt fyrir eftirlitsnefndinni á aukafundi bæjarstjórnar í dag.

Ef nefndin samþykkir áætlunina skuldbindur Reykjanesbær sig til að fylgja henni mjög stíft eftir en eins og nefndin tók fram er áætlunin það raunhæf að hún gefur svigrúm fyrir áföllum sem kunna að verða á gildistíma hennar.

Mikil og góð vinna hefur farið fram hjá bæjaryfirvöldum og embættismönnum Reykjanesbæjar með aðstoð sérfræðinga við mótun aðlögunaráætlunar Reykjanesbæjar 2017-2022. Áætlunin fór til fyrri umræðu í bæjarstjórn síðastliðinn þriðjudag og var í lok fundar vísað til annarrar umræðu 18. apríl næstkomandi.

Aðlögunaráætlunin gerir ráð fyrir að Reykjanesbær verði kominn niður fyrir 150% skuldaviðmiðið í árslok 2022. Það næst með áframhaldandi aðhaldi í rekstri, að samningar náist við kröfuhafa í þeim málum sem enn á eftir að semja um og ef spár um 2,5% íbúafjölgun á ári ná fram að ganga.