Nýjast á Local Suðurnes

Lúðrasveit verkalýðsins með árlega hausttónleika

Lúðrasveit verkalýðsins blæs til árlegra hausttónleika sunnudaginn 27. nóvember næstkomandi í samstarfi við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Á tónleikunum koma fram ungir einleikarar frá skólanum og flytja með sveitinni fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.

Tónleikarnir hefjast klukkan 16 í Stapa, Hljómahöll. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.