Saka bílastæðaþjónustu um glæfraakstur á bílum viðskiptavina
![baseparking skjaskot fbl](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2019/12/baseparking-skjaskot-fbl.jpg?resize=620%2C264)
Bílastæðaþjónustan Base Parking á Keflavíkurflugvelli er sökuð um ólöglega starfshætti með því að taka bíla viðskiptavina sinna og aka þeim í leyfisleysi. Frá þessu er greint í ítarlegri umfjöllun Fréttablaðsins sem hefur undir höndum myndbönd sem sýna starfsmenn fyrirtækisins keyra bílunum af miklu gáleysi.
Á myndböndunum sjást starfsmennirnir meðal annars aka glannalega, keyra á sjálfstýrðum bíl án ökumanns og spóla á malarvegi. Eigandi bílastæðaþjónustunnar vísar öllum ásökunum á bug, en umrædd myndbönd og umfjöllun Fréttablaðsins má sjá hér.